Svona hugsar þú um húðina og tattooið þitt
-
Það er misjafnt hvernig fólk upplifir ferlið á meðan húðin grær eftir tattoo. Að meðaltali tekur það 4-6 vikur að gróa en það getur tekið lengur, það fer eftir stærð, staðsetningu og gerð flúrsins.
Í flestum tilfellum grær húðin fljótt og vel og lítið þarf að huga að því. Aðrir eru ekki eins heppnir og nýja tattooið þarf mikla athygli og umhyggju til þess að húðin jafni sig vel og grói.
Umhirðan í fyrstu vikunni er mikilvægust og ef hreinlætið er ekki sem best getur það haft áhrif á útkomu tattoosins. Mundu að þvo þér alltaf um hendurnar áður en þú kemur við tattooið! -
Það er best að hafa plásturinn á fyrstu nóttina ef þú getur. Minnst skaltu hafa hann á í 2 klukkutíma og mestalagi 48 klukkutíma (2 daga). Eðlilegt er að það safnist vökvi undir plástrinum. Ef vökvinn byrjar að leka undan plástrinum er best að taka plásturinn af. Því ef vökvi kemst út undan plástrinum, þá getur baktería komist inn sömu leið og eykur það líkurnar á sýkingu til muna.
Það er eðlilegt að tattooið sjálft sé rautt og bólgið þegar það er nýtt. Með tímanum róast roðinn í húðinni og bólgan. Hinsvegar eru sumir með ofnæmi fyrir líminnu í plástrinum en það lýsir sér með roða í húðinni í kringum brúnina á plástrinum (frekar en á tattoo svæðinu sjálfu). Sumir eru viðkvæmir fyrir þessum plástri og þá er best að taka plásturinn af ef þú upplifir óeðlilega ertingu á húðinni. Hlustaðu á líkama þinn, plásturinn á ekki að vera óþægilegur, það er þá betra að taka hann af til öryggis.
þegar plásturinn er tekinn af er best að gera það í sturtu eða með rennandi vatni til að minnka áreiti og ertingu á húðinni. Togaðu varlega í endana á plástrinum til að losa hann. Gerðu þetta hægt og rólega og gefðu því góðan tíma. Alls ekki rífa plásturinn af þurri húð!
Þegar plásturinn hefur verið fjarlægður skaltu þvo tattoosvæðið varlega með heitu vatni og mildri, ilmefnalausri sápu. Heita vatnið gæti orsakað sviða á húðinni, en þetta hjálpar til við að opna húðina. Alls ekki nudda tattooið með handklæði eftir á, heldur er best að leyfa því að þorna af sjálfu sér. Mikilvægast er að halda tattooinu hreinu og þvo að minnsta kosti tvisvar á dag (morgni og kvölds) til að minnka líkurnar á sýkingu. -
Húðsvæðið með nýja tattooinu þarf að fá að anda til að hjálpa því að gróa. Einnig er gott að bera á það krem til að forðast að það húðsvæðið þorni, það flýtir fyrir gróanda og gerir ferlið mun þægilegra. Ef flúrið er þurrt, eykst erting og meiri hætta er á að þú fáir þörf til að klóra í það. Forðastu krem sem innihalda mikið af petroleum t.d. vaselin og A&D krem. Við mælum með vörunum sérstaklega hönnuð fyrir tattoo. Hjá Feyrún Tattoo seljum við vörur frá Recovery Aftercare sem hafa reynst okkur mjög vel. Passaðu að bera aðeins lítið magn af kremi á svæðið, of mikið krem getur stíflað bæði tattooið og svitaholur sem getur valdið bólum og útbrotum. Þunnt lag af kremi nokkrum sinnum á dag er alveg nóg.
-
Passaðu að vera ekki í þröngum fötum yfir flúr, sem loka á loftstreymi eða skóm sem nudda tattooið. Þú tefur batatíman og veldur skaða á flúrinu ef fatnaðurinn veldur ertingu eða lokar á öndun húðarinnar. Við mælum með víðum og kósí fatnaði.
-
Mælum með að þú forðist slíkt í 4-6 vikur.
-
Lifðu eins og vampíra! Sólin er þinn versti óvinur núna.
Sólarvarnir eru ekki gerðar til að vernda sár og nýtt tattoo. Ef sólarljós skín á ferskt tattoo er líklegt að þú finnir fyrir brunatilfinningu og húðin bólgni. Hlustaðu á líkamann þinn. Ef húðin á tattoosvæðinu er heit og aum, skaltu strax fara úr sólinni. Ef þú kemst ekki hjá því að vera í sól skaltu hylja flúrið með flík sem andar vel og passaðu að halda því frá svitamyndum. Alls ekki nota sólarbekki! Sólarvörn má aðeins nota á fullgróin tattoo. Því miður mun flúruð húð alltaf vera viðkvæm fyrir sólarljósi og útfjólubláum geislum. Eldri fullgróin tattoo geta líka brugðist illa við sól. Passaðu þig því alltaf að bera á þig sólarvörn í framtíðinni.
Í stuttu máli, sól = slæm tattoo. -
Á meðan tattooið er að gróa er eðlilegt að það leki smá blóðvökvi úr húðsvæðinu og það getur farið í rúmföt og fatnað. Ef svo óheppilega vill til nýja flúrið er fast við rúmfötin þegar þú vaknar skaltu ekki panikka. Ekki rífa það af, taktu rúmfötin með þér í sturtu og bleyttu efnið með köldu eða volgu vatni til að fjarlægða það hægt frá tattooinu. Best er að sofa með flúrið bert og ofan á sænginni til að forðast að lenda í þessum aðstæðum.
-
EKKI FIKTA! Það er eðlilegt að smá hrúður myndist á húðsvæðinu meðan flúrið er að gróa. Mikilvægt er að láta tattooið alveg vera á meðan það er að gróa. Klór, skrúbb og kropp er alveg bannað. Ef þú kroppar í hrúðrið eða húðsvæðið er mikil hætta á að þú skemmir flúrið og þar með blekið úr húðinni og eftir gæti myndast ör. Smá krem mun slá á kláðann og að skola það með köldu vatni hjálpar líka. Leyfðu tattooinu að gróa að sjálfu sér, þolinmæði þrautir vinnur allar.
-
Farðu í sturtu frekar en bað fyrstu 2-3 vikurnar eða þar til húðin en gróin að fullu. Tattooið er viðkvæmt fyrir bakteríum og ekki gott að hafa það ofan í vatni á meðan það er opið sár.
Þetta á við um heita og kalda potta, gufubað og sund (sundlaugar, ár, vötn, læki og sjó þar með talin). -
Við mælum með að sleppa allri líkamsrækt og æfingum fyrstu 1-2 vikurnar. Óhreint umhverfi, mikill sviti og aukið áreiti á húðsvæðinu auka líkurnar á sýkingu. Núningur á nýju tattooi getur haft slæmar afleiðingar á loka útkomuna.
Eftir 2 vikur:
Þú getur byrjað rólega að fara aftur á venjulegar æfingar, en hlustaðu á líkamann. Ef húðflúrið er aumt og pirrað, gefðu því meiri tíma í að gróa.Hreinsaðu alltaf húðflúrið eftir æfingu með volgu vatni og mildri sápu og berðu svo á það þunnt lag af græðandi kremi.